Lisa Laun flytur fyrirlestur í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins 13. mars 2025, kl. 12:00–13:30
Lisa Laun
Sænska lífeyriskerfið: Lærdómar af lífeyrisumbótunum á tíunda áratugnum og langtímasjónarmið
Lisa Laun mun halda málstofu um sænska lífeyriskerfið þar sem fjallað verður um lærdóma af lífeyrisumbótunum á tíunda áratug síðustu aldar og langtímasjónarmið varðandi afkomu lífeyrisþega og sjálfbærni lífeyriskerfisins.
Lisa er prófessor í hagfræði við Rannsóknastofnun vinnumarkaðs- og menntastefnu (IFAU) og dósent við Hagfræðideild Stokkhólmsháskóla. Undanfarin 15 ár hefur hún tekið þátt í NBER-verkefninu International Social Security (ISS), sem er langtíma alþjóðlegt samstarfsverkefni um almannatrygginga- og lífeyriskerfi og starfslok í mismunandi löndum. Hún starfaði nýverið sem sérstakur rannsakandi fyrir sænsku ríkisstjórnina í tengslum við rannsókn á lífeyrisiðgjöldum og hefur jafnframt verið varaformaður sænska fjármálaráðsins (e. fiscal council).

