Fyrirlestur um áhrif lífeyrisauðs á vinnumarkaðsþátttöku í Þjóðminjasafninu, 11. júní, 12-13.30,

Anne Katrine Borgbjerg, doktorsnemi við hásólann í Árósum, mun halda fyrirlestur í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins 11. júní 2026, kl. 12:00–13:30:

 

Anne Katrine Borgbjerg

Lífeyrisréttindi og eftirlaunaaldur

Áhrif lífeyrissparnaðar á tímasetningu starfsloka eru metin með gögnum sem ná yfir meira en 25 ár. Nýttur er breytileiki í sparnaði sem rekja má til tímabundins munar á iðgjöldum fyrirtækja snemma á starfsferli til að greina áhrif á vinnuframboð frá 55 ára aldri. Meiri lífeyrissparnaður leiðir til þess að einstaklingar hverfa fyrr af vinnumarkaði, og áhrifin aukast með aldri og eftir því sem hvatar til snemmbúinna úttekta styrkjast. Lögbundinn sparnaður getur þannig aukið lífeyrissparnað en jafnframt hvatt til fyrrra starfsloka, sem mikilvægt er að hafa í huga við mótun umbóta sem miða að auknum sparnaði og lengri starfsævi.

 

Anne Katrine er doktorsnemi í hagfræði við háskólann í Aarhus. Hún nýtir dönsk stjórnsýslugögn og nýjustu aðferðir í rannsóknum til að svara samfélagslega mikilvægum spurningum á sviði lífeyrismála, öldrunar og starfsloka. Rannsóknaráhugamál hennar beinast að hagfræði starfsloka, heilbrigðishagfræði og vinnumarkaðshagfræði.