PRICE fyrirlestur um gervigreind 6. ágúst

Gil S. Epstein  (Bar-Ilan University) mun halda fyrirlestur þann 6. ágúst klukkan 12-13.30 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins:

 

Gil S. Epstein

Þegar gervigreindin spyr mannshugann: Hvers vegna ert þú hér?

Þetta erindi fjallar um þróun gervigreindar — frá sögulegum rótum hennar til nýjustu tækniframfara — og hvetur okkur til að endurmeta hvað það er sem gerir okkur einstök sem manneskjur á tímum gervigreindar. Við munum skoða hvernig stór tungumálalíkön (Large Language Models) og sköpunargervigreind (generative AI) eru að umbreyta vinnumörkuðum, menntun og ákvarðanatöku. Með því að styðjast við nýjustu alþjóðlegu strauma og rannsóknir frá Ísrael, munum við greina hvaða störf eru helst í hættu vegna sjálfvirknivæðingar, hvaða hæfileikar og kunnátta verður verðmætari og hvernig opinber stefnumótun getur brugðist við. Síðasti hluti erindisins snýr að hlutverki gervigreindar í samfélögum þar sem öldruðum fer fjölgandi: munu vélar leysa af hólmi mannlega umönnun, eða munu þær auka mikilvægi samkenndar, visku og lærdómi sem flyst frá einni kynslóð til þeirrar næstu?

 

Prófessor Gil S. Epstein er prófessor í hagfræði við Bar-Ilan háskólann og gegnir þar stöðu í opinberri stefnumótun. Hann var áður deildarforseti Félagsvísindadeildar og gegnir nú hlutverki yfirmanns rannsókna og starfshóps um vinnumarkaðsstefnu við Taub-stofnunina  í Ísrael. Rannsóknarsvið hans nær yfir vinnumarkaðshagfræði, opinbera stefnumótun, gervigreind og stjórnmálahagfræði. Hann hefur verið einn höfunda áhrifamestu skýrslna sem skrifaðar hafa verið í Ísrael um gervigreind og vinnumarkað — skýrslur sem hafa verið notaðar í Knesset þinginu, OECD og öðrum alþjóðastofnunum. Hann situr í  sérfræðihópi í AI-stefnumótun á vegum ríkisstjórnar Ísraels og MOSAIC-stofnunarinnar.