PRICE fyrirlestur um erlendar fjárfestingar lífeyrissjóða 7. júní

Bandaríski hagfræðingurinn Robert Z. Aliber mun halda fyrirlestur í stofu 101 í Odda þann 7. júní frá klukkan 12 til 13.30 um erlendar fjárfestingar lífeyrissjóða.

Í fyrirlestri sínum mun Aliber fjalla um tengsl erlendra fjárfestinga lífeyrissjóða og mynsturs viðskiptahalla og viðskiptaafgangs í heiminum og hvernig afgangur á viðskiptum eins lands skapar halla í viðskiptum annarra landa. Hann mun leitast við að svara þeirri spurningu hvort þjóðir Vesturlanda, sem horfa fram á fjölgun fólks á lífeyrisaldri, geti fjármagnað fyrirséða aukningu lífeyrisgreiðslna með erlendum fjárfestingum og hvaða erfiðleika slíkar fjárfestingar geta skapað í alþjóðahagkerfinu.

Að loknum fyrirlestur Alibers munu Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, og Lúðvík Elíasson, yfirmaður rannsókna- og spádeildar Seðlabanka Íslands, ræða um efni fyrirlestursins.

Fundurinn er öllum opinn.

 

Meeting_07_june_isl_final