Ásta Ásgeirsdóttir

Ásta Ásgeirsdóttir er hagfræðingur og stærðfræðingur að mennt. Hún starfaði lengi í Danmörku að loknu námi og vann þar hjá dönskum lífeyrissjóðum, m.a. við greiningar á sjóðfélagahópum og þróun nýrra lífeyrislausna. Eftir flutning til Íslands árið 2018 starfaði Ásta hjá fjármálastöðugleikasviði Seðlabanka Íslands við greiningar á stöðu heimilanna og frá 2020 sem hagfræðingur hjá Landssamtökum lífeyrissjóða.