Fyrirlestur um fjárfestingar lífeyrissjóða, Þjóðminjasafn 28. apríl, 12-13.30

Jón Guðjónsson, doktorsnemi við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn, mun halda fyrirlestur í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins 28. apríl 2026, kl. 12:00–13:30:

Jón Guðjónsson

Þolinmæði eða skammtímabrask? Hverjir leiða hjarðhegðun á mörkuðum?

Margar rannsóknir hafa sýnt fram á skýran mun á hegðun fag- og einstaklingsfjárfesta á fjármálamörkuðum. Fagfjárfestar eru almennt taldir stunda upplýstari viðskipti og taka síður þátt í eignabólum. Í þessari rannsókn skoðum við viðskipti með íslensk hlutabréf á árunum 2020-2024 og metum hversu líklegir ólíkir fjárfestahópar eru til að sýna hjarðhegðun. Niðurstöður okkar benda til þess að hjarðhegðun á kauphlið markaðarins sé að mestu leyti drifin áfram af einstaklingsfjárfestum, á meðan fagfjárfestar eru líklegri til að synda gegn straumnum. Á söluhliðinni eru það þó fyrst og fremst fagfjárfestar sem knýja áfram hjarðhegðun. Þessar niðurstöður benda til þess að það sé ekki tegund fjárfesta ein og sér sem ræður því hvort þeir sýni hjarðhegðun, heldur skipti fjárfestingarstefna og vægi grundvallargreiningar í henni meira máli. Til að varpa frekara ljósi á þetta skoðum við sérstaklega viðskipti lífeyrissjóða og berum þau saman við viðskipti annarra fagfjárfesta.

 

Jón Guðjónsson er doktorsnemi við hagfræðideild CBS í Kaupmannahöfn. Rannsóknarsvið hans eru þjóðhagsvarúðartæki, fjármálastöðugleiki og fræðileg þjóðhagfræði. Hann hefur einnig starfað við útfærslu þjóðhagsvarúðarstefnu síðan 2017, fyrst hjá Fjármálaeftirlitinu og svo seinna við fjármálastöðugleikasvið Seðlabanka Íslands.