Fyrirlestur um grunnlífeyri og umbætur á sænska lífeyriskerfinu 23. október, 12-13.30

Johannes Hagen, dósent í hagfræði við Viðskiptaháskólann í Jönköping, mun halda fyrirlestur í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins 23. október 2026, kl. 12:00–13:30:

Johannes Hagem

Umbætur á grunnvernd sænska lífeyriskerfisins

Í júní 2026 fól sænska ríkisstjórnin sérstakri nefnd að kanna umbætur á grunnvernd (e. basic protection) lífeyriskerfisins (Dir. 2026:57), í kjölfar undirbúningsvinnu starfshóps undir forystu Johannes Hagen í heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytinu. Á málstofunni mun Johannes Hagen kynna niðurstöður starfshópsins og fjalla um þá vinnu sem nú stendur yfir. Grunnvernd sænska lífeyriskerfisins byggist á tryggingalífeyri ásamt ýmsum viðbótargreiðslum og tekjutengdum bótum. Markmið nefndarstarfsins er að einfalda bótakerfið, gera það auðskiljanlegra og beina stuðningnum betur að þeim sem á honum þurfa að halda.

Johannes Hagen er dósent í hagfræði við Jönköping International Business School við Jönköping-háskóla. Rannsóknir hans beinast einkum að lífeyrismálum, starfslokum og fjárhagslegum ákvörðunum heimila. Hann hefur verið skipaður af sænsku ríkisstjórninni til að stýra nefndinni sem fjallar um endurskoðun grunnverndar lífeyriskerfisins.

VIÐBURÐIR FRAMUNDAN