Kolbeinn H. Stefánsson (University of Iceland) mun halda fyrirlestur í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins 24. september frá 12-13.30:
Kolbeinn H. Stefánsson
Lífeyrissjóðirnir og lífskjör eldra fólks
Í erindinu er fjallað um þróun lífskjara og lágtekjuhlutfalla eldri borgara frá aldamótum á grundvelli skráargagna Hagstofu Íslands. Lífskjör eldra fólks hafa batnað verulega frá aldamótum og lágtekjuhlutföllin benda til þess að það hafi náðst fádæma árangur í baráttunni gegn fátækt þessa hóps. Í erindinu verður rýnt í ýmsa áhrifaþætti sem kunna að skýra þessa þróun en niðurstaðan bendir til að hann skýrist fyrst og fremst af vaxandi réttindum eldra fólks í lífeyriskerfinu.
Kolbeinn Stefánsson varði DPhil ritgerð sína í félagsfræði frá Oxfordháskóla árið 2013 og starfar sem dósent við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands