PRICE fyrirlestur í desember um dreifingu auðs og ójöfnuð í heiminum.

Sænski hagfræðingurinn Daniel Waldenström mun halda fyrirlestur í stofu 101 í Odda þann 19. desember frá klukkan 12 til 13.30:

 

Daniel Waldenström

Wealth and Inequality: The Untold History

 

Í fyrirlestrinum mun Waldenström fjalla um rannsóknir sínar á eignadreifingu í heiminum allt aftur til loka 19. aldar. Hann mun lýsa því hvernig fjölgað hefur í miðstéttinni og hvernig hlutdeild hennar í heildarauði vestrænna samfélaga hefur vaxið. Óheft fjármagnskerfi þarf þannig ekki að leiða til vaxandi ójöfnuðar. Forsenda framfaranna var stofnanaumhverfi sem gerði fólki kleift að afla sér menntunar, spara og eignast húsnæði og lífeyrissparnað. Waldenström fjallar um það hvernig unnt sé að tryggja þennan ávinning og jafnframt hvetja til frekari eignamyndunar.

 

Fyrirlesturinn er öllum opinn.

 

Daniel Waldenström er Research fellow við Research Institute of Industrial Economics í Stokkhólmi.